Hahahahahahahahahaha það er ekki annað en hægt að hlæja að þessari vitleysu.
Af hverju segir maðurinn ekki af sér? Hann var ekki kosinn á þing fyrir VG.. Já svona er hið nýja Ísland, alveg eins og það gamla, sama bullið og ruglið.
Að lesa athugasemdina frá Baldvini félaga mínum um að Íslendingar séu bara að fást við lúxusvandmál minnir mig á eitt atvik frá Sri sem segir kannski allt sem að segja þarf um það hvað við erum að berjast við í okkar þjóðfélagi.
Snemma árs fór ég á vettvang í fiskiþorp sem að stjórnarherinn hafði gert loftárás á. aðkoman var hreint úr sagt hörmuleg, það stóð ekki eitt hús eftir árásina og það var allt á rúi og stúi, mannfall var mikið og margir slasaðir líka. Ég heimsótti sjúkrahús þar sem að þeir særðu lágu og sú minning mun aldrei gleymast lítil börn, konur og gamalmenni í mis slæmu ástandi.
Þegar ég komst svo aftur á netið og fór að lesa fréttirnar hérna heima á netmiðlunum þá sá ég hvað var verið að berjast við á Íslandi. Ég man nú ekki nákvæmlega hverjar voru forsendurnar en fréttin var að fólk var að rífast yfir bílastæði. Ég las þessa frétt og hugsaði með mér á þeim tíma, íslendingar gera sér enga grein fyrir því hvað þeir hafa það gott og hvað þeir búa í rauninni við góðar aðstæður.
Kv.J
Það er alltaf gaman þegar íslenska landsliðið hækkar á þessu lista. EN ég þykist nú muna eftir viðtali sem að tekið var við formann KSÍ fyrir leikinn á móti Kanada þar sem að hann sagði nú að þessi listi væri meira til gamans, mér fannst það mjög merkilegt svar hjá honum þar sem að mig minnir nú að fyrrum þjálfarar landsliðsins, Ásgeir og Logi, hafi verið reknir fyrir að vera neðarlega á þessum grín lista.??????
Þá er komið að síðustu færslu minni hérna frá Sri Lanka, Gummi þakka þér kærlega fyrir dyggan lestur og stöðug comment, gangi þér vel í þínum störfum og ég hlakka til þess að setjast niður með þér og bera saman reynslu okkar. Ég á ekki von á því að ég muni blogga mikið hér eftir og ég vona að allir sem að hafa lesið þetta hjá mér hafi haft einhverja ánægju af því. Ég hef áður sagt að sögunar eru miklu fleiri en ekki við hæfi að setja þær hér, þær fara í reynslubankann.
Gærdagurinn var mjög blendinn tilfinningalega, síðasti vinnudagurinn og það var bæði ánægjulegt og einnig var smá söknuður sem að lét á sér bera þegar ég talaði við heimamenn sem að ég hef unnið sem mest með bæði hérna í Colombo og einnig í Vavuniya, því miður komst ég ekki aftur á gamla svæðið mitt þessar síðustu tvær vikur, það eina sem að ég gat gert var að hringja í stafsstöðina þar sem að ég var og tala við þau öll í einu það endaði svo með því að þau töluðu öll við mig í sitt hvoru lagi eftir það og ég fékk svo frábærar kveðjur frá þeim og ég hugsa að ég hafi sjaldan fengið eins miklar lofræður á jafn stuttum tíma. Svo fór ég og spjallaði við þau sem að ég hef mest verið í samskiptum við hérna í Colombo og það var sama, mér var sagt hvað mín yrði saknað og í hversu háum metum ég væri hjá þeim, þetta var eiginlega orðið of mikið.  En þetta var mjög ánægjulegt að hafa kynnst þessum einstaklingum og að þau bera þessa hlýju til mín er ómetanlegt. Á morgunn verður svo í síðasta skipti á skrifstofunni, þá er búið að bjóða okkur í hádegismat og við verðum kvödd formlega, þar skila ég af mér síðustu hlutunum sem að ég hef frá SLMM.
Í gærkvöldi héldum við partý fyrir alla í SLMM sem að áttu heimangengt það voru því miður ekki margir sem að komust frá útstöðvunum bara þau sem voru á leið í eða úr fríi, þetta heppnaðist samt rosalega vel og það var mikið stuð langt fram eftir nóttu, umræðurnar í lokinn voru svo misgáfulegar og sumir allt of þreyttir til þess að fara heim en á heildina litið mjög skemmtilegt og góður endir á veru minni hérna á Sri Lanka.
Ég kveð svo Sri Lanka á þriðjudagsmorgunn etir níu mánaða veru hérna, í heildina litið fer ég héðan sáttur ég hef öðlast dýrmæta reynslu kynnst frábæru fólki og öðlast nýja sýn á lífið að lifa og hrærast í því (stríðs) ástandi sem að er í þessu landi.
Þá ætla ég ekki að vera að hafa þetta mikið lengra og núna getur litla ljónið mitt komið og farið eins og henni sýnist, ég er nú samt nokkuð viss um að hún fær ekki að vera með tyggjó þegar hún fer að sofa þó að hún geti snúið pabba sínum í kringum sig nánast að vild..   Hlakka til að sjá ykkur öll heima sérstaklega prinsessurnar mínar og koma lífinu í eðlilega rútínu.
Kv.J
Já þá er maður kominn út aftur eftir stórkostlegt frí með stelpunum mínum. Það er samt orðið svo stutt eftir hérna að maður gerir sér eiginlega ekki grein fyrir því það eru 10 vinnudagar eftir hérna úti og 14 dagar í að ég komi heim. Við komum saman ég og Helga sem að kom með mér hingað á sama tíma við erum hérna jafn lengi upp á dag.
Ég er að vonast til þess að komast á gamla svæðið mitt áður en ég fer og kveðja það góða fólk sem að ég vann með þar, það kemur í ljós núna í vikulokin hvort að það verður eitthvað af því. Annars er ástandið hérna sérstaklega gott það hafa verið miklir bardagar á austurströndinni sem að virðast vera að færast í norðrið núna og ég vil ekki hugsa út í það hvað gerist ef að þetta breiðist alvarlega út þar.
En það er best að taka upp léttara hjal, litla ljónið fékk línuskauta frá mér í afmælisgjöf og ljómaði með þá hún fékkst varla til þess að fara úr þeim eftir að hún fékk þá. Eldri prinsessan ætlar að fara að reyna fyrir sér í fótbolta og segist vilja vera í marki, það er spurning hvort að hún fetar í fótspor vinar míns sem að heldur því fram að hún sé skírð í höfuðið á, ég vona bara að hún hafi gaman af þessu og fái áhugann til þess að halda áfram.
Við sjáum svo til hvað ég verð duglegur að skrifa hérna þessa síðustu daga en ég lofa engu.
Kv.J
Ég kem heim á eftir.............. Vá hvað ég hlakka til að sjá alla, sérstaklega litla ljónið mitt og ekki minna að sjá stóru prinsessuna mína....
Kv.J
Já það er víst ár og öld síðan ég setti eitthvað hérna inn síðast. Kem hérna með eina stutta færslu, ég er að koma til Íslands á fimmtudaginn og verð heima í rúmar tvær vikur. Næ að knúsa litla ljónið mitt á afmælisdaginn hennar......  Meira segi ég ekki í bili.
Kv.J
Lífið í Colombo er bara nokkuð gott, það er algjör snilld að koma heim til sín í íbúð en ekki upp á hótelherbergi. Næsta vika verður væntanlega nokkuð annasöm ég fer út í feltið á austurströndina, Trincomale og svo á gamla svæðið mitt í Vavuniya það verður gaman að hitta local staffið þar aftur eftir langan tíma. Mér datt í hug ein stutt saga sem að ég var ekki búinn að segja frá hérna og sýnir kannski best hvað maður getur orðið ónæmur.
Það var hérna fyrir ca 2 mánuðum að þá var ráðist á strætó hérna í norðurhlutanum. Það var ákveðið að senda lið á staðinn ég og góðvinur minn hann Aðalbjörn vorum sendir af stað. Á þessum tíma þá bjuggum við á hótelinu og það verður að segjast eins og er að maður verður svakalega þreyttur á að því og maður notar hvert tækifæri til þess að sleppa í burtu.
Það var þess vegna mikil gleði sem að ríkti hjá okkur félögunum þegar við fórum af stað brandararnir flugu og, Guns and roses welcome to the jungle, þrumað í spilarann við héldum af stað glaðir og hressir yfir að losna það sem að gerir þetta frekar einkennilega hegðun  fyrir marga var að við vorum að fara að skoða vettvang þar sem að hafði átt sér stað árás á saklausa borgara og orðið átta manns að bana. Maður verður hálf skrítinn á að vera í þessu starfi það er nokkuð ljóst.
Kv.J
Góðan daginn Ísland.....
Þá kom loksins að því, ég er fluttur af hótelinu og kominn með íbúð inn í Colombo það má segja að fagnaðarlátunum hafi aldrei ætlað að linna....  Hérna verð ég staðsettur það sem eftir er að samningstímanum.
Annars er ekki mikið að frétta þannig séð stríðið er í gangi og lítið sem virðist vera hægt að gera til þess að koma vitinu fyrir þessa menn og það sem að verra er, maður er orðinn samdauna þessu og kippir sér ekki lengur upp við þessa hluti sem að eru í gangi hérna, segir manni það að maður ætti að fara að koma sér heim kannski??
Annars er loksins farið að koma fólk hingað eftir að allir fóru fyrir rúmlega viku og vonandi fer þetta að komast í eðlilegt horf, annars er ég búinn að taka við öryggismálunum þannig að það er mikið óöryggi hérna þar til í ágúst og ég fer heim.
Það er samt svo gott að vera kominn í íbúð og ekki að búa á hóteli sem getur gjörsamlega klárað geðheilsuna til lengdar, hmmmm ætli maður sé búinn að missa geðheilsuna? Það er spurning.  Styttist í fríið og heimferð trlalalalalalalal  Jæja þetta er nóg komið af samhengislausu röfli bið að heilsa í bili. Ó og ég komst að því um daginn að litla stelpan mín hefur óbilandi trú á pabba sínum þegar kemur að því að ná bófum.  Þeir sem að hafa aðgang geta lesið um commentið hennar á barnlandi...
Kv.J
Það eru miklar breytingar framundan hérna, þann 12 þessa mánaðar þá eru hvorki fleiri né færri en 6 kvikyndi að hætta í missioninu, það verður þess vegna frekar fátt núna næstu vikurnar á meðann að nýja fólkið er að koma sér hingað niður eftir. Það verður mikill söknuður að missa þetta fólk þar sem að maður er búinn að mynda tengsl við þau en svo ég vitni nú í dóttur mína "að heilsast og kveðjast er lífsins saga" vona að þetta hafi verið rétt hjá mér annars verð ég örugglega leiðréttur.
Annars er búið að vera rólegt hérna síðustu 2 daga, það varð allt vitlaust á laugardaginn og fram á þriðjudag á gamla staðunum mínum, það er að segja við víglínuna ég fékk fullt af símtölum frá fólki þarna uppfrá og þetta ástand er fáránlegt gagnvart hinum almenna borgara ekki að það komi neitt við þessa menn.
Forsetinn mætti hérna í viðtal á sjónvarpstöð og sagði að allt væri búið með friðarsamkomulagið sem að við erum að hmmmmm fylgjast með að haldist, strax daginn eftir voru öll blöðin hérna að draga úr orðum forsetans, já og trúið mér að flest blöðin hérna birta ekkert án þess að vera búin að tékka á því hvort að þau megi birta þessa frétt,  spurningin hvort að þetta hafi verið einhver pólitísk flétta hjá forsetanum til þess að lýta vel út þar sem að hann virðist vera að reyna að impressa lönd hér í kring. Annars er ég ekki það pólitískt þenkjandi að ég geti lagt einhvern dóm á það.... Kemur mér spánskt fyrir sjónir (furðulegt orðatiltæki).
Ég er búinn að sækja um frí og stefni á að koma heim í júlí því ekki ætla ég að missa af afmælisdegi hjá litla ljónsunganum mínum, hún er núna ekkert á því að tala við pabba sinn í síma, enda nóg annað að gera heldur en að vera að hanga í einhverju símaveseni, verð að viðurkenna að mér leið nú aðeins betur þegar mamma hennar sagði mér að þetta væri nú ekki bara ég sem að hún nennti ekki að tala við heldur nennti hún bara almennt ekki að tala í símann.
Eldra dóttureintakið er að flytja heim í sumar og kemur væntanlega á þeim tíma sem að ég verð í fríi heima, ekki slæmt það, ég fer svo aftur hingað út í 2 vikur til þess að klára samninginn minn hérna og það verður nú bara að viðurkennast að það verður voðalega ljúft að komast aftur í daglegt líf heima á Íslandi. Þessi tími hérna hefur samt reynst mér mjög dýrmætur og lærdómsríkur og kennt mér (allavega í 2 vikur eftir heimkomu) að meta þær aðstæður sem að maður býr við heima fyrir utan veðrið náttúrulega.
Kv.J
Góðan daginn.
Um leið og ég skráði mig inn á MSN þá fékk ég spurningar um hvort ég væri í lagi,  ég  var að skoða fréttina á MBL.
Það er allt í lagi með mig og þó að það sé greinilega eitthvað mikið að gerast hérna og fréttin segi að starfsmenn frá Rauða krossinum hafi verið rænt og þeir myrtir, það er rétt en þetta voru heimamenn sem að eru að starfa fyrir Rauða krossinn hérna en ekki alþjóðlegir starfsmenn.
Þetta eru samt mjög sorglegar fréttir en öryggi okkar er ekki í hættu. Ég vildi koma þessu á framfæri svo að fólk fari ekki að hafa óþarfa áhyggjur af mér hérna.....
Kv. J
Góðan daginn.....
Þá er það komið á hreint að ég tek við nýrri stöðu hérna úti þann 12 júní, yfirmaður öryggismála security manager,  byrjaði í dag að vinna með fráfarandi security og margt nýtt sem þarf að læra og kynna sér. Ég er mjög sáttur við að taka við þessari stöðu og það eykur bara við þá reynslu sem að ég er að ná mér í hérna. Það er loksins að gerast hérna að fólk er að fara á gamla svæðið mitt til þess að vera, það er vissulega söknuður í því að fara ekki þangað til þess að vera en svona er þetta bara.
Annars hef ég ekki frá neinu sérstöku að segja núna, vildi bara henda inn smá færslu til þess að láta vita að ég sé á lífi og að ég er búinn að sækja um frí til þess að koma heim í júlí..  Ég á reyndar eftir að fá svar en ég hlýt að fá jákvætt útúr því..
Kveðja. J
Héðan frá Sri er ekki mikið að frétta sem er ástæðan fyrir því að ég hef ekki verið setja neitt hérna inn (Gummi ). Það sem er búið að gerast síðan síðast. Hmmmmmmm
Í fríinu mínu um daginn þá fór ég í heimsókn til bróður míns sem að býr í Svíþjóð, ég hef ekki hitt í langan tíma, það var virkilega gaman og þau tóku vel á móti okkur, það var líka gott að setjast bara aðeins niður og spjalla við bróa. Hann á stelpu jafngamla Jóhönnu og þær náðu alveg svakalega vel saman böbluðu saman á dansk/sænsk/íslensku.. Fórum með þær og strákinn hans í tívolí í Gautaborg sem var þvílíkt stuð, það verður víst að viðurkennast að hugrekki einhvernvegin lýtur maður með öðrum augum á þessi tæki þegar börnin manns eru að fara í þau heldur en þegar maður var sjálfur alveg vitlaus að fara í þau á árum áður  maður er búinn að þroskast svo mikið með árunum, hmmmm tja eða ekki...
Flugið til Sri gekk svona nokkurn veginn stórslysalaust fyrir sig, smá seinkunn í París vegna þess að þeir eru hættir að fljúga á nóttinni hérna, skíthræddir við Cesnu flugher kisana, kom á hótelið og var fagnað og heilsað með virktum af staffinu, ætli maður sé búinn að vera of lengi á hóteli þegar staffið þekkir mann með nafni?? Spurning.
Síðasta laugardag fórum við svo til Colombo ég, Aðalbjörn, Dagný og Helga. Tékkuðum okkur inn á Hilton hótel, asskoti fínt hótel, fengum okkur að borða og kíktum svo á lífið í Colombo mjög gaman en hápunktur kvöldsins voru þó litlu gulu nuddararnir sem að umkringdu Dagnýju á djamminu, ég læt fylgja linkinn á bloggið hennar því hún segir svo vel frá þessu sjálf. http://www.dagnyst.blogspot.com/  Algjör snilldar saga.
Núna er að koma upp skrítinn staða hérna úti, það eru svo margir að fara heim, klára samningana, og það virðist ekki vera neitt í sjónmáli að það komi út fólk í staðinn, helsti söknuðurinn er þó að Aðalbjörn fór heim í fyrrinótt. Hans verður sárt saknað hérna af vinum en á móti samglaðst með honum að vera kominn heim..
Hlakka til að hitta þig Aðalbjörn og eiga við þig gott spjall það hefur verið mjög gott að eiga þig að hérna úti og geta leitað til þín.
Jæja þá er búið að gráta Björn bónda.  Ég setti inn 3 myndir um daginn og það koma fleiri núna í framhaldinu.  Það er þó jákvætt að það er eitthvað farið að minnast á það að við förum aftur út í feltið og er ég ekki frá því að það bjargi ýmsu hérna svo sem eitt stykki geðheilsu minni...
Biðst innilegrar afsökunar að þessi skrif skuli ekki vera skemmtilegri en ég fæ vonandi eitthvað bitastætt og skemmtilegt að skrifa um fljótlega...  Kveðja til allra heima sérstaklega til pæjanna minna sem eru báðar á Íslandi um þessar mundir..
Kv.J